TikTok
Reglur varðandi hugverkarétt

Birta 27. mars 2025

Tekur gildi 26. apríl 2025


TikTok virðir hugverkaréttindi og krefst þess að farið sé að þeim reglum sem fram koma í þjónustuskilmálum og háttsemisreglum TikTok, en þar er lagt bann við efni er brýtur gegn eða raskar á annan hátt hugverkaréttindum annarra, þar með töldum höfundarétti og vörumerkjarétti.

Höfundaréttur

Höfundaréttur eru lögvarin réttindi sem er ætlað að vernda andlega sköpun höfunda (t.d. tónlist, myndbönd o.s.frv.). Almennt verndar höfundaréttur tjáningu hugmyndar (t.d. þann tiltekna hátt sem myndband eða tónlist er tjáð eða búin til) en verndar ekki undirliggjandi hugmyndir eða staðreyndir.

Brot gegn höfundarétti

Við leyfum ekkert efni sem brýtur gegn höfundarétti. Notkun á höfundaréttarvörðu efni annarra án fullnægjandi leyfis eða lagalega gildrar ástæðu kann að fela í sér brot gegn skilmálum TikTok.

Þó telst ekki öll notkun höfundaréttarvarins efnis án leyfis vera brot. Víða hafa landslög að geyma undantekningar sem heimila, undir vissum kringumstæðum, notkun höfundaréttarvarins efnis án leyfis rétthafa.  Sem dæmi um slíkar undantekningar má nefna kenninguna um sanngjarna notkun (e. fair use) í Bandaríkjunum, leyfð sanngjörn not (e. fair dealing) í Evrópusambandinu (ESB) og aðrar sambærilegar undantekningar samkvæmt gildandi lögum annarra landa.

Efni fjarlægt; bann tiltekinna reikninga

Hvers kyns notandaefni sem brýtur gegn höfundarétti annars aðila kann að verða fjarlægt. Ef notandi brýtur gegn höfundarétti með því að nota Í BEINNI (e. LIVE) eiginleikann, kann aðgangur notandans að Í BEINNI eiginleikanum að verða takmarkaður tímabundið.

Við höfum tekið upp og innleitt verklagsreglur vegna ítrekaðra brota á hugverkarétti og í þeim er kveðið á um að við getum, undir vissum kringumstæðum, bannað reikning notanda sem ítrekað brýtur gegn höfundarétti.  Sé um alvarlegt brot á höfundarétti að ræða getum við tekið ákvörðun um að banna hvaða reikning sem er tafarlaust. Við áskiljum okkur rétt til að hafna beiðni reikningshafa um að opna nýjan TikTok-reikning ef reikningur á vegum reikningshafans var notaður til ótilhlýðilegra athæfa.

Upplýsingar fyrir rétthafa

Tilkynning um brot gegn höfundarétti

Teljir þú að einhver noti höfundaréttarvarið verk þitt í heimildarleysi hvetjum við þig til þess að hafa samband við notandann fyrst, svo hægt sé að leysa úr málinu fljótt og milliliðalaust.

Þú getur líka sent tilkynningu um brot gegn höfundarétti og óskað eftir því að efni, sem þú telur brjóta gegn höfundarétti, verði fjarlægt af TikTok. Þetta getur þú gert með stafrænu eyðublaði okkar eða í gegnum appið. Vinsamlegast hafðu í huga að í bandarískum lögum, n.t.t. Digital Millennium Copyright Act (DMCA), eða sambærilegum lögum annarra ríkja, er að finna lögbundnar kröfur sem gerðar eru til tilkynninga um höfundaréttarbrot. Svo unnt sé að leggja mat á tilkynningu frá þér þarft þú að veita allar upplýsingar sem óskað er eftir á stafræna eyðublaðinu okkar.  Ef þú sendir okkur tilkynningu gætum við haft samband við þig ef spurningar vakna varðandi tilkynninguna. Skortur á nauðsynlegum upplýsingum kann að takmarka getu okkar til að rannsaka málið sem tilkynning þín varðar og gæti leitt til þess að kröfum þínum verði hafnað. Upplýsingum úr tilkynningu þinni, til dæmis upplýsingar um nafn rétthafa, kann að verða miðlað til þess notanda sem sakaður er um höfundaréttarbrot.

Áður en þú sendir tilkynningu skaltu íhuga hvort efnið sem þú hyggst tilkynna gæti fallið undir heimila notkun höfundaréttarvarins efnis vegna lögbundinna takmarkana á höfundarétti. Hafðu líka huga að ef þú sendir vísvitandi villandi eða sviksamlega tilkynningu gæti tilkynningunni verið hafnað og slíkt gæti leitt til skaðabótaskyldu samkvæmt lið 512(f) í bandarísku lögunum DMCA eða sambærilegum lögum annarra ríkja.

Tilskipun ESB um höfundarétt

Viljir þú senda fyrirspurn um heimild TikTok til að gera höfundaréttarvarin verk þín aðgengileg á TikTok, í samræmi við 17. grein tilskipunarinnar um höfundarrétt (ESB 2019/790) skaltu vinsamlega nota þetta eyðublað. Við munum fara yfir beiðnina og hafa samband við þig í kjölfarið.

Viljir þú að tónlist eða hljóð- og myndefni frá þér sé gert óaðgengilegt innan ESB getur þú sent inn beiðni þess efnis með því að fylla út þetta eyðublað. Til að TikTok geti lagt mat á beiðni þína þarftu að veita okkur viðeigandi og nauðsynlegar upplýsingar um þig og höfundaréttarvörðu verkin þín. Þegar TikTok hefur móttekið upplýsingarnar og staðfest beiðnina mun TikTok leggja sig fram um að tryggja að höfundaréttarvarin verk þín verði ekki aðgengileg á TikTok innan ESB.

Þegar þú sendir okkur tilkynningu með stafrænu eyðublaði vegna höfundaréttarbrots gætir þú beðið okkur um að koma í veg fyrir að afrit af myndbandi birtist aftur á miðlinum í framtíðinni. Ef þú gerir það og ef myndband er fjarlægt vegna tilkynningarinnar frá þér munum við gera okkar besta til að koma í veg fyrir að sama myndband birtist aftur á miðlinum.

Upplýsingar fyrir notendur: Áfrýjun vegna höfundaréttarbrota

Ef þú ert notandi og staðsett(ur) utan Evrópusambandsins

Þú færð tilkynningu í appinu ef efnið þitt hefur verið fjarlægt vegna tilkynningar um höfundaréttarbrot. Við eyðum efni sem hefur verið fjarlægt af miðlinum eftir tiltekinn tíma í samræmi við gildandi lög og reglur okkar um varðveislu gagna. Eftir eyðingu verður ekki lengur hægt að endurheimta efnið.

Ef þú telur að efnið þitt hafi verið fjarlægt fyrir mistök eða að þú hafir leyfi til að nota efnið geturðu haft beint samband við rétthafann til að biðja um afturköllun af hans hálfu.

Þú getur líka lagt fram áfrýjun í TikTok-appinu, en slík áfrýjun er aðgengileg í gegnum tilkynninguna sem þú fékkst í appinu. Vinsamlegast hafðu í huga að DMCA-lögin í Bandaríkjunum, eða sambærileg lög annarra ríkja, veita leiðbeiningar um hvernig notandi sem í hlut á getur lagt fram andmælatilkynningu og þannig áfrýjað ákvörðun um að fjarlægja efni. Svo unnt sé að leggja mat á áfrýjun frá þér þarftu að veita allar nauðsynlegar upplýsingar, þar á meðal tengiliðaupplýsingar og þau sönnunargögn sem styðja við kröfu þína. Ef þú sendir okkur áfrýjun gætum við haft samband við þig ef spurningar vakna varðandi áfrýjunina. Skortur á nauðsynlegum upplýsingum kann að takmarka getu okkar til að rannsaka málið sem áfrýjun þín varðar og gæti leitt til þess að kröfum þínum verði hafnað. Vinsamlegast hafðu í huga að þar sem við á og lög heimila munum við áframsenda alla áfrýjunina þína til upphaflegs tilkynnanda, þar á meðal tengiliðaupplýsingar sem þú hefur veitt, í samræmi við þjónustuskilmála og persónuverndarstefnu okkar.  Rétthafinn gæti notað upplýsingarnar til málshöfðunar gegn þér. Rétthafinn gæti til dæmis farið fram á dómsúrskurð, til að tryggja að efnið birtist ekki, í samræmi við DMCA-lögin í Bandaríkjunum eða sambærileg lög í öðrum löndum.

Við gætum endurheimt efni þitt ef það brýtur ekki gegn höfundarétti rétthafa eða við fáum ekki tilkynningu um að rétthafi hafi farið fram á dómsúrskurð því til varnar að efnið birtist á ný, í samræmi við DMCA-lögin í Bandaríkjunum eða sambærileg lög annarra ríkja. Það er háð einhliða ákvörðun TikTok hvort efni verði endurheimt eða ekki.

Ef þú ert notandi staðsett(ur) í Evrópusambandinu

Þú færð tilkynningu í appinu ef efnið þitt hefur verið fjarlægt vegna tilkynningar um höfundaréttarbrot. Við eyðum efni sem hefur verið fjarlægt af miðlinum eftir tiltekinn tíma í samræmi við gildandi lög og reglur okkar um varðveislu gagna. Eftir eyðingu verður ekki lengur hægt að endurheimta efnið. Ef þú færð tilkynningu um að efni þitt hafi verið fjarlægt vegna tilkynningar um höfundaréttarbrot og telur að þú hafir rétt til að birta umrætt efni geturðu lagt fram áfrýjun í TikTok-appinu, en slík áfrýjun er aðgengileg í gegnum tilkynninguna í appinu sem þú fékkst senda.

Samkvæmt lögum Evrópusambandsins er notendum heimilt að nota höfundarréttarvarið efni án sérstaks leyfis rétthafa ef um er að ræða beinar tilvitnanir, gagnrýni, umsagnir eða í skopstælingu, afmyndun eða aðlögun, svo framarlega sem sú notkun er sanngjörn. Einstaka aðildarríki ESB kunna einnig að gera frekari undantekningar. Hér að neðan er að finna nánari upplýsingar um undantekningar og takmarkanir á höfundarrétti innan ESB:

  • Tilvitnanir, gagnrýni og umsagnir

Tilvitnun er notkun á útdrætti úr höfundaréttarvörðu verki í því skyni, til dæmis, að setja fram fullyrðingu, verja skoðun eða eiga í rökræðum. Tilvitnanir má einnig nota til að gagnrýna höfundaréttarvarið verk (til dæmis gagnrýni um kvikmynd) eða gefa því umsögn (til dæmis umsögn um bók eða plötu).

  • Afmyndun, skopstæling og aðlögun

Afmyndanir miða að því að ýkja eða brengla veruleikann, yfirleitt í gamanskyni. Skopstæling vísar í fyrirliggjandi höfundaréttarvarið verk en er greinilega öðruvísi og ætlað sem tjáning í gamanskyni eða háði. Við aðlögun eru yfirleitt notaðar tilteknar einingar úr öðrum verkum eða öðrum stílbrögðum beitt til að búa til nýtt verk.

Til að notkun á höfundaréttarvörðu verki rúmist innan tiltekinnar undantekningar eða takmörkunar verður notkunin að vera sanngjörn. Með því er átt við að notkunin skuli, eftir því sem við á: (i) ekki vara lengur en nauðsynlegt er; (ii) vísa með fullnægjandi hætti í upprunaverkið og (iii) ekki skaða með óréttmætum hætti lögmæta hagsmuni rétthafa.

Vörumerki

Vörumerki er orð, tákn, slagorð, hönnun eða einhver samsetning af framangreindu sem auðkennir uppruna vöru eða þjónustu og aðgreinir hana frá öðrum vörum eða þjónustu.

Brot á vörumerkjarétti

Vörumerkjalög veita vernd gegn brotum á vörumerkjarétti, en slík brot geta falist í óleyfilegri notkun á eins eða svipuðu vörumerki eða þjónustumerki í tengslum við vörur eða þjónustu á hátt sem líklegur er til að valda ruglingi eða villu um uppruna, upprunastað, stuðning eða tengsl viðeigandi vöru eða þjónustu.

Aftur á móti telst það ekki til brota á skilmálum okkar að nota vörumerki í eigu annars aðila, til að vísa til, setja inn ummæli vegna, gagnrýna, búa til skopstælingu eða veita álit á vörum eða þjónustum vörumerkjaeigandans eða til að bera þær saman við aðrar vörur eða þjónustur, enda sé tilgangurinn ekki að vekja athygli á eigin vörum eða þjónustum eða þriðja aðila. Með sama hætti er almennt heimilt að búa til aðdáendasíðu um vörumerki, þó að ekki hafi verið aflað leyfis frá eiganda vörumerkisins, að því tilskildu að notandi fullyrði ekki að hann komi fram fyrir hönd eða hafi tengsl við vörumerkið eða brjóti á annan hátt gegn hugverkarétti eiganda vörumerkisins.

Falsanir

Falsanir eru ólögleg framleiðsla, innflutningur eða útflutningur, dreifing, sala, milliganga um viðskipti eða önnur aðkoma að viðskiptum með vörur undir vörumerki sem er eins eða hefur verulega líkingu við skráð vörumerki, án leyfis vörumerkjaeigandans þannig að brotið sé gegn réttindum vörumerkjaeigandans.

Efni fjarlægt; bann tiltekinna reikninga

Hvers kyns efni sem brýtur gegn vörumerkjarétti annarra kann að verða fjarlægt, þar að auki leyfum við ekki kaup, sölu, viðskipti með, kynningu á eða viðskiptabeiðnir í tengslum við falsaðar vörur á TikTok og munum við fjarlægja slíkt efni. Ef um er að ræða brot á vörumerkjarétti í tengslum við notkun á Í BEINNI eiginleikanum gætum við einnig takmarkað tímabundið aðgang brotlega notandans að Í BEINNI eiginleikanum .

Við höfum tekið upp og innleitt verklagsreglur vegna ítrekaðra brota á hugverkarétti og í þeim er kveðið á um að við getum, undir vissum kringumstæðum, bannað reikning notanda sem ítrekað brýtur gegn vörumerkjarétti. Sé um alvarlegt brot á vörumerkjarétti að ræða getum við tekið ákvörðun um að banna hvaða reikning sem er tafarlaust. Við áskiljum okkur rétt til að hafna beiðni reikningshafa um að opna nýjan TikTok-reikning ef reikningur á vegum reikningshafans var notaður til ótilhlýðilegra athæfa.

Upplýsingar fyrir rétthafa: Tilkynning um brot gegn vörumerkjarétti

Ef þú telur að einhver hafi brotið gegn vörumerkjarétti þínum hvetjum við þig til að hafa samband við notandann til að hægt sé að leysa úr málinu fljótt og milliliðalaust.

Þú getur líka sent tilkynningu um brot gegn vörumerkjarétti og óskað eftir því að efni, sem þú telur brjóta gegn rétti þínum, verði fjarlægt af TikTok. Þetta getur þú gert með stafrænu eyðublaði okkar eða í gegnum appið. Allar tilkynningar ættu að innihalda þær upplýsingar sem óskað er eftir á stafræna eyðublaðinu vegna brota á vörumerkjarétti. Ef þú sendir okkur tilkynningu gætum við haft samband við þig ef spurningar vakna varðandi tilkynninguna. Skortur á nauðsynlegum upplýsingum kann að takmarka getu okkar til að rannsaka málið sem tilkynning þín varðar og gæti leitt til þess að kröfum þínum verði hafnað. Upplýsingum úr tilkynningu þinni, til dæmis upplýsingum um nafn rétthafa, kann að verða miðlað til þess notanda sem sakaður er um brot gegn vörumerkjarétti. Áður en þú sendir tilkynningu ættirðu að íhuga hvort notkun vörumerkisins falli undir heimila notkun samkvæmt viðeigandi vörumerkjalögum. Vinsamlegast hafðu líka í huga að ef villandi eða sviksamleg tilkynning er send með vísvitandi hætti gæti kröfum þínum samkvæmt tilkynningunni verið hafnað og þú gætir orðið skaðabótaskyld(ur) samkvæmt gildandi lögum.

Upplýsingar fyrir notendur: Áfrýjun vegna brota gegn vörumerkjarétti

Þú færð tilkynningu í appinu ef efnið þitt hefur verið fjarlægt vegna tilkynningar um brot gegn vörumerkjarétti. Við eyðum efni sem hefur verið fjarlægt af miðlinum eftir tiltekinn tíma í samræmi við gildandi lög og reglur okkar um varðveislu gagna. Eftir eyðingu verður ekki lengur hægt að endurheimta efnið.

Ef þú telur að efnið þitt hafi verið fjarlægt fyrir mistök eða að þú hafir leyfi til að nota efnið geturðu haft beint samband við rétthafa til að biðja um afturköllun af hans hálfu.

Þú getur líka lagt fram áfrýjun í TikTok-appinu, en slík áfrýjun er aðgengileg í gegnum tilkynninguna sem þú fékkst í appinu. Þú munt þurfa að veita allar nauðsynlegar upplýsingar, þar á meðal tengiliðaupplýsingar og öll sönnunargögn til stuðnings kröfu þinni. Ef þú sendir okkur áfrýjun gætum við haft samband við þig ef spurningar vakna varðandi áfrýjunina. Skortur á nauðsynlegum upplýsingum kann að takmarka getu okkar til að rannsaka málið sem áfrýjun þín varðar og gæti leitt til þess að kröfum þínum verði hafnað. Vinsamlegast athugaðu að þar sem við á og lög heimila munum við áframsenda alla áfrýjun þína til upphaflegs tilkynnanda, þar á meðal tengiliðaupplýsingar sem þú hefur veitt, í samræmi við þjónustuskilmála og persónuverndarstefnu okkar.

Almenn atriði

Sem TikTok-notandi berðu ábyrgð á efninu sem þú birtir. Ef þú hefur spurningar um höfundaréttar- eða vörumerkjalög, til dæmis spurningar um hvort efnið þitt eða notkun þín á nafni annars aðila eða vörumerki brýtur gegn réttindum annars aðila, gætirðu viljað ráðfæra þig við lögfræðing.

Sért þú, sem rétthafi hugverkaréttinda, óviss um hvort efni sem þú hefur í hyggju að tilkynna til okkar, brjóti gegn hugverkaréttindum þínum, gætir þú viljað fá lögfræðilega ráðgjöf áður en þú lætur verða að slíkri tilkynningu.

Vinsamlegast athugaðu að TikTok hefur ekki úrskurðarvald í ágreiningsmálum milli aðila og ekki er víst að TikTok geti fjarlægt efnið eða bannað hinn tilkynnta reikning. Í samræmi við lögbundnar skyldur okkar veitum við notendum og rétthöfum úrræði í tengslum við ágreining um brot á hugverkarétti. Notendur eða rétthafar gætu einnig átt kost á öðrum úrræðum til að fá lausn sinna deilumála, til dæmis að leita lausnar utan dómstóla eða fyrir bærum dómstólum samkvæmt viðeigandi landslögum.