Við söfnum upplýsingum um þig meðan þú notar TikTok. Þessari síðu er ætlað að draga fram hvaða upplýsingar það eru og hvernig við notum þær.
Við bjuggum líka til vídeó sem útskýra málið nánar og deila með þér dæmum um hvernig við notum upplýsingarnar þínar. Allar upplýsingarnar er að finna í persónuverndarstefnunni okkar.
Mundu að þú verður að vera að minnsta kosti 13 ára til að nota TikTok. Ef þú ert undir 18 ára skaltu ræða við foreldri eða forráðamann áður en þú byrjar að nota TikTok.
Við gætum safnað eftirfarandi upplýsingum um þig
Upplýsingarnar sem við söfnum
Hvernig við notum upplýsingarnar þínar
Við notum aðeins upplýsingarnar sem við höfum um þig lögum samkvæmt. Þetta þýðir að við verðum að hafa gilda ástæðu fyrir að nota upplýsingarnar þínar.
Lögum samkvæmt eru sex gildar ástæður. Þrjár algengustu ástæðurnar sem TikTok notar eru:
Þegar þú hleður niður TikTok appinu eða býrð til reikning gengst þú undir samning við okkur. Í þessum samningi samþykkjum þú og við að gera, og gera ekki, ákveðna hluti. Við þurfum að nota upplýsingarnar þínar til að geta gert sumt af því sem samþykkjum að gera. Ef við myndum ekki nota upplýsingarnar þínar gætum við ekki veitt þér hina heildstæðu TikTok upplifun. Til dæmis gætum við ekki boðið upp á fyrir þig streymið sem er sniðið að hverjum notanda.
Upplýsingarnar þínar og Fyrir þig streymið
Upplýsingarnar þínar og viðmiðunarreglur fyrir samfélagið okkar
Lögin leyfa okkur að nota upplýsingarnar þínar ef lögmætir hagsmunir krefjast þess (ef við höfum góða ástæðu til að nota upplýsingarnar þínar og neikvæð áhrif á réttindi þín vega ekki þyngra). Til dæmis eru það lögmætir hagsmunir að nota upplýsingarnar þínar til að vernda öryggi og velferð samfélagsins okkar. Í þessu gæti falist að fara yfir það sem þú gerir á TikTok til að tryggja að það gangi ekki gegn viðmiðunarreglum okkar fyrir samfélagið.
Við getum notað upplýsingarnar þínar ef þú veitir okkur „samþykki“ þitt en það er sérstök tegund af lagalegu leyfi. Ef við óskum eftir samþykki þínu munum við:
Upplýsingar þínar og aðrar stofnanir
Við gætum deilt einhverjum af upplýsingunum þínum með öðrum fyrirtækjum og stofnunum.
Lög í Evrópu veita þér rétt yfir upplýsingunum þínum Við höfum útskýrt þennan rétt og hvernig þú getur beitt honum í persónuverndarstefnunni okkar.
Við höfum líka búið til verkfæri og stillingar sem þú getur notað til að stjórna upplýsingunum þínum og persónuvernd. Við erum stöðugt að leita leiða til að bæta okkur svo þessi verkfæri og stillingar geta breyst með tímanum. Þú getur fylgst með þróun mála með að kíkja á [Stillinga- og persónuverndarstjórnborðið] þitt (aðgengilegt frá síðunni Ég) og skoða hjálparmiðstöðina og öryggismiðstöðina.
Verkfærin og stillingarnar okkar gera þér kleift að gera eftirfarandi.
Að stjórna upplýsingunum þínum
TikTok fyrir unglinga
Þú verður að vera að minnsta kosti 13 ára til að nota TikTok. Ef þú ert yngri en 18 ára munt þú ef til vill taka eftir því að sumir eiginleikar á TikTok eru ekki aðgengilegir eða að þú getur ekki breytt sumum stillingunum. Þetta er vegna þess að við viljum að þú notir TikTok á ánægjulegan og öruggan hátt sem hæfir þínum aldri.
Til dæmis er sjálfvalið að reikningurinn þinn sé lokaður ef þú ert yngri en 16 ára. Ef þú ert 16 eða 17 ára getur þú valið milli lokaðs eða opinbers reiknings þegar þú býrð hann til. Ef þú velur ekkert er sjálfvalið að hann sé lokaður.
Ef þú ert með lokaðan reikning getur eingöngu fólk sem þú samþykkir fylgt þér, skoðað vídeóin þín, vídeó Í BEINNI, æviágrip og læk ásamt þínum fylgjanda og fylgjendalistum.
Ef þú ert með opinberan reikning verða prófíllinn þinn og vídeó sýnileg og hægt er að deila þeim frá öllum sem eru á eða utan TikTok (hvort sem þeir eru með TikTok reikning eða ekki) og geta birst í leitarvélum, bloggum, færslum á samfélagsmiðlum og fréttasíðum.
Mundu, hvort sem reikningurinn þinn er lokaður eða opinber mun nafn þitt, notandanafn og prófílmynd alltaf vera sýnilegt hverjum sem er á eða utan TikTok. Óháð tegund reikningarins þíns getur þú alltaf takmarkað sýnileika einstakra færslna. Þá verða færslurnar þínar takmarkaðar við markhópinn sem þú velur. Hér getur þú séð hvernig þú breytir stillingunum fyrir vídeó.
Í gátt unga fólksins finnur þú allar upplýsingarnar sem þú þarft til að upplifun þín af TikTok sé sem best.
Ef þú ert foreldri TikTok notanda sem er yngri en 18 ára skaltu skoða Leiðbeiningar fyrir forráðaaðila. Þar má finna upplýsingar og úrræði sem hjálpa þér að skilja TikTok og verkfærin og stjórntækin sem þú og unglingurinn þinn geta kveikt á, eins og eiginleikinn okkar fjölskyldupörun.
Við vonum að þessir hápunktar persónuverndar hafi svarað einhverjum spurningum sem þú hafðir um hvernig við notum upplýsingarnar þínar. Frekari upplýsingar má finna í hjálparmiðstöðinni, öryggismiðstöðinni, gagnsæismiðstöðinni og með því að lesa persónuverndarstefnuna okkar. Ef þú hefur spurningu skaltu hafa samband við okkur eftir upplýsingunum í persónuverndarstefnunni eða fylla út vefeyðublaðið okkar.